View Screen Reader-Friendly Version

nýr alvöru gervigrasvöllur

Hamar/Ægir - 4.fl. karla fyrir leik sinn gegn Álftanesi þann 12. júní 2026

Föstudagi 12. júní 2026 kl. 16:00 var nýr kafli skráður í íþróttasögu Hamars og Hveragerðisbæjar. Fyrsti leikurinn fór fram á nýju gervigrasi upp í Dal. Veðrið var eins og alltaf, þurrt, logn og glaða sólskin. Það voru strákarnir á 4.fl Hamar/Ægir sem léku þennan fyrsta leik og léku þeir gegn Álftanesi. Fyrsti heimasigur kom, fyrsta mark vallarins (skorað af Hauk Kára) og fyrsta þrennan skoruð (af Elmari Smára). Þetta er glæsilegur völlur sem á eftir að breyta miklu fyrir iðkendur og þjálfara.

TIL HAMINGJU HAMAR

Fallegt er það!

SJÁLFBOÐALIÐINN

Sjálfboðaliðinn, segja menn að sé deyjandi dýrategund. Það getur verið eitthvað til í því og kannski oft auðvelt að ,,finnast það" en þegar betur er að gáð þá er hann þarna öllum stundum, sjálfur sjálfboðaliðinn. En kannski er málið að það er aldrei nóg af honum. Það er nóg af hlutverkum og störfum sem hægt er að ganga í. Alltaf eitthvað sem hægt er að gera og alltaf hægt að bjóða sig fram í störf sem viðkomandi er góður í. Það er fínt taktík - að bjóða sig fram í það sem maður vill gera eða er fær í, í stað þess að vera boðaður í starf sem maður vill ekki gera :). Fyrir hvern heimaleik meistaraflokks er fjölda verka sem þarf að gera. Það þarf að passa upp á að framkvæmd og umgjörð leiksins sé réttur m.t.t. reglna og laga KSÍ. Svo er það umgjörðin sem félagið vill skapa og búa til og hlúa að. Hamar hefur gott orð á sér fyrir umgjörðina fyrir leik og að umgjörðin hér sé góð miðað við lið í 4. deild. Nýbreytni er að yngri flokkur sem stefnir á utanlandsferð fær að reka sjoppuna og njóta ágóðans af þeirri sölu. Í sumar er það 4.fl. drengja sem stefna á æfingarferð til Barcelona í haust sem standa sjoppuvaktina. Að einhver beri ábyrgð og hafi yfirsýn yfir sjoppunni er ein stoðin sem styður góða umgjörð leiksins. Þessi leikskrá er afurð mín af því að ég vildi gera eitthvað jákvætt, eitthvað sem ég er góður í (að eigin mati), a.m.k. betri í en að sveifla hamri. Eins og liðið sem stefnir upp um deild og jafnvel svo aftur um aðra deild á komandi árum þurfum við líka að stefna ,,að fara upp um deild" í umgjörð og framkvæmd leiksins. Þetta helst í hendur. Þarna kemur sjálfboðaliðinn/stuðningsmaðurinn inn í dæmið. Kannski er hann að deyja út, kannski þarf hann bara meiri umbun en áður, kannski þarf hann bara jákvæðari umfjöllun.... ...en þegar á reynir þá sýnir Bónusmótið (sjá umfjöllun síðar í leikskránni) um helgina að dýrategundin ,,sjálfboðaliðinn" er sprell lifandi.

Það er ekki bara Bónusmótið sem gekk vel með framlagi sjálfboðaliða því að stórmót líkt og HM 2026 gengur ekki upp án sjálfboðaliðana. Það eru 65.000 sjálfboðaliðar sem starfa á vegum FIFA í þeim þremur löndum og þeim sextán borgum sem keppnin er háð í. Umsóknarmet var slegið í aðdraganda keppnarinnar í ár en yfir milljón manns sóttu um að vera sjálfboðaliði! Þeirra helsta hlutverk er jú einmitt, að bæta og tryggja góða upplifun á meðan á mótinu stendur.

Þú ert hamar

ÉG ER HAMAR

VIÐ ERUM ÖLL HAMAR!

Leikmenn, stuðningsmenn, sjálfboðaliðar og styrtkaraðilar framtíðarinnar njóta veðursins í ,,stúkunni" á Grýluvelli.

STYRKTARAÐILINN

Líkt og sjálboðaliðinn þá er styrktaraðilinn hverju íþróttafélagi gríðarlega mikilvægur. Herlegheitin kosta jú alltaf eitthvað. Hamar nýtur góðs af sínum styrktaraðilum og knattspyrnudeildin er styrkt af góðum styrktaraðilum.

takk

BÓNUSMÓTIÐ

Bónusmótið var haldið í Hveragerði dagana 20.-21. júní í Hveragerði. Mótið var fyrir 7.flokk karla (eldra ár) og voru um 200 keppendur úr sex félögum sem tóku þátt, Stjarnan, FH, Þróttur, Selfoss, ÍR og Hamar. Mótið hófst á Laugardegi þar sem liðin spiluðu leiki á Bónusmótinu. Eftir hádegismat á Laugardegi voru iðkenndur úr öllum liðum blandað saman í hin ýmsu landslið og spiluðu þeir sitt eigið Heimsmeistaramót. Með þessu fyrirkomulagi var markmiðið að leyfa strákunum að kynnast strákum úr öðrum liðum á nýjum forsendum. Það var ótrúlega gaman að sjá þetta fyrirkomulag og heppnaðist það vel. Eftir HM var farið í sundlaugarpartý í Laugaskarði og endaði skipulögð dagskrá á grilluðum hamborgurum í íþróttahúsinu. Liðin gistu svo í grunnskólanum og fóru í morgunmat á sunnudegi í íþróttahúsinu áður en haldið var aftur uppí dal að spila seinni hluta Bónusmótsins. Eftir keppni var svo verðlaunaafhending og pítsuveisla. Það má með sanni segja að mótið hafi heppnast ótrúlega vel og allir iðkenndur hafi farið heim með bros á vör eftir gott fótboltamót í Hveragerði. Í Hveragerði höfum við allt til þess að halda svona mót. Í dag er komin fyrsta flokks knattspyrnuaðstaða með nýjum gervigrasvelli ásamt Grýluvelli, skólinn okkar hýsir iðkenndur, hægt er að snæða í íþróttahúsinu, sundlaugin fullkomin í slökun eða afþreyingu, tjaldsvæði búið til undir hamrinum til að hýsa foreldra. Að auki er náttúran í Hveragerði einstök sem heillar fólk og flóran af veitingarstöðum gríðarleg fyrir þau sem vilja gera vel við sig. Þrátt fyrir stuttan fyrirvara  í undirbúningi þá voru ótrúlega margar hendur sem hjálpuðust að við að gera þetta að veruleika. Um 60 sjálfboðaliðar unnu hin ýmsu verk sem þurfti að sinna. Gæsla í skólastofum, elda mat fyrir liðin, standa sjoppuvaktir, dæma leikina, gæsla í sundlaug og ótal margt fleira. Hamar er ríkt af fólki sem er tilbúið að leggja hönd á plóg fyrir félagið. Án þessa fólks væri þetta ekki hægt!!! Markmiðið er að halda Bónusmótið aftur að ári, læra af því sem hægt er að gera betur og halda áfram að gera það sem gott var. Vonandi verður þetta fastur liður í Hveragerði um ókomin ár.  

Myndir tók Aron Eðvarð Björnsson

Það er gaman að vera Hamarsmaður

Þorsteinn t. ragnarssoN

Ég hef oft velt fyrir mér spurningunni: “Fyrir hvern er verið að keppa í íþróttum?” Sú spurning hefur oftast nær kviknað hjá mér þegar umræðan fer að snúast um að kaupa sér árangur. Með því á ég við að ráða til liðsins leikmenn sem eiga að vera betri en þeir sem fyrir eru til að ná betri árangri inn á vellinum. Þetta má horfa á frá svo ótal hliðum og engin ein leið eða skoðun er réttari í þessu en önnur. Íþróttir eru vinsælasta afþreyingar og skemmtiefni í heimi og ber knattspyrnan af er kemur að áhorfi. Erum við ekki keppa í íþróttum fyrir stuðningsmenninna? Eða erum við að keppa að árangri sem lið fyrir metnað stjórnarinnar eða þjálfara? Hafandi skrifað þetta þá verðum við að skoða þetta út frá okkar aðstæðum og gildum. Við erum fámennt en samheldið rúmlega 3500 manna þorp á landsbyggðinni, þó þægilega nálægt borginni og akkurat nógu langt frá henni til að vera komin í þorpsstemmninguna, sveitina. Hamar er sverð okkar og skjöldur út á við og við fylkjum okkur að baki þess, hvaðan sem við komum áður en við komum til Hveragerðis eða höfum alltaf verið hér. Afreksstarf í íþróttum er sérstaklega mikilvægt fyrir bæjarfélag eins og okkar. Við eigum að gera allt til þess að geta sent til keppni lið í meistaraflokki, í bæði karla og kvennaíþróttum, hver sem íþróttin er innan Hamars.

Meistarflokkurinn er toppurinn á ísjakanum og markmið flestra sem byrja að æfa sína íþrótt á unga aldri. Eðlilega kvarnast úr hópnum eftir því sem lengur er æft og eftir stendur fámennur hópur eftir 10 ára undirbúning sem bíður eftir tækifærinu til að spila sinn fyrsta meistaraflokksleik. Það er risastór áfangi í lífi fótboltamannsins og moment sem gleymist aldrei. Þess vegna eigum við að gera akkurat það sem við erum að gera, við spilum á heimamönnum eins og frekast er kostur og ráðum til okkar sterkari leikmenn sem hryggjarstykkið í liðinu, sem flestir verða Hvergerðingar í gegn og Hamarsmenn í hjarta eftir örfáar vikur. Af þessum leikmönnum læra okkar iðkendur mest og verða fyrir vikið betri leikmenn. Við erum að gera þetta hárrétt! Það er ekki alltaf hæfileikinn sem skilar manni takmarkinu heldur hugarfarið. Við viljum lið frekar en hóp. Það er svo miklu skemmtilegra að horfa á Arnór, Stebba, Ragnar Inga, Ingimar og alla þessa drengi sem maður hefur þekkt síðan þeir þurftu aðstoð á klósettinu… Mætum á völlinn og styðjum við okkar menn, það er ótrúlegt hvað það er dýrmætt í að ná árangri. Það hefur verið verulega skemmtilegt að fylgjast með strákunum í Hamri á knattspyrnuvellinum í sumar. Ég held að ég hafi mætt á næstum alla leiki það sem af er tímabils, heima og heiman. Það hefur verið mjög góður stígandi í liðinu, menn eru teknir að slípast betur saman og sóknarleikurinn hefur borið árangurinn uppi. 6 sigrar í 7 leikjum. Við höfum skorað langflest mörkin í deildinni til þessa og leiðum með þónokkrum mun. Varnarleikurinn hefur batnað verulega í þessum 7 leikjum og er varla hægt að bera saman liðið sem hóf leik í vor við liðið sem stóð vörðinn um hreint markið á móti Árborg. Sígandi lukka er best. Markmiðið að komast upp um deild er þarna við sjóndeildarhringinn en það er heil umferð eftir og margt getur gerst enn. Við sáum nú á síðasta tímabili hvað getur gerst í seinni umferðinni. Það segir allt um þennan hóp sem er svo til sá sami og í fyrra. Það þarf að vera progress í öllu sem við gerum, við viljum vera betri í dag en í gær. Það hafa leikmenn sannarlega sýnt á þessu tímabili og stjórn deildarinnar einnig. Öll umgjörð um leiki er alltaf að verða betri og tilkoma þessarar leikskrár er sannarlega skrautfjöður í hatt ykkar. Þið eigið allan heiður skilinn fyrir þetta og hvernig tekist hefur að virkja sjálfboðaliða til góðra verka. Takk! Til ykkar strákar, þið eruð sverð okkar og skjöldur og eruð fyrirmynd fyrir alla fótboltakrakka í Hveragerði og víðar. Við erum stolt af ykkur. Við bjóðum leikmenn og stuðningfólk Elliða hjartanlega velkomið á Grýluvöll í Hveragerði. Fallegasta fótboltavöll í heimi.   Þorsteinn T. Ragnarsson Formaður íþróttafélagsins Hamars

Formaðurinn hefur spila einn meistaraflokksleik (enn sem komið er!). ,,Þetta var útileikur gegn Kóngunum í Safamýri 12 ágúst 2015. Þá var ég formaður knattspyrnudeildar og hafði tekið pre-seasonið með þeim til að fylla upp í hóp. Svo vantaði mann á skýrslu undir lok sumars og ég henti mér í búninginn og fékk nokkrar mínútur og var næstum búinn að skora... Það hefði verið sætt."

ANDSTÆÐINGURINN

Andstæðingur dagsins er Elliði úr Árbænum. Liðið situr í 4. sæti í deildinni með 10 stig og markatöluna 18:19. Í síðustu umferð töpuðu þeir stórt gegn Árborg 0:6 en unnu ÍH 6:2 í umferðinni þar á undan. Jafntefli gegn Höfnum og tap gegn Úlfunum þar á undan. Fljótt á litið virðist Pétur Óskarsson vera þeirra skæðasti leikmaður og rótgróinn Árbæingur. Skorað 106 mörk í 225 mfl. leikjum og að mestu með Elliða.

Liðin eru með skráðar fjórar innbyrðisviðureignir á vef KSÍ, þar sem Hamar hefur sigrað tvo leiki og Elliði einn leik - einn leikur endaði með jafntefli en það var núna í febrúrar er liðin áttust við í Lengjudeildarbikarnum. Fór sá leikur 1:1 þar sem Binni skoraði en áður nefndur Pétur Óskarsson jafnaði á 85. mín. Liðin áttust svo við í deildinni í fyrra þar sem í fyrri umferðinni, jú rétt, tapaði Hamar 3:2 en jú í seinni umferðinni var liðið komið hið fræga ,,run" og sigraði 3:1. Pétur skoraði tvö af þessum þremur mörkum Elliða í fyrra - greinilega ..fox in the box". Þetta stefnir í slag eldri kynslóðarinnar þar sem Pétur er fæddur 1990 líkt og okkar menn Guido (Guðjón) og Roli. :) Við bjóðum Elliða og hans stuðningsfólk velkomið á Grýluvöllinn. ÁFRAM HAMAR!

SÍÐUSTU LEIKIR

HAMAR vs ÁRBORG

Fimmtudaginn 11. Júní fengum við Árborg í heimsókn á Grýluvöll. Það var mikil eftirvænting fyrir einvíginu og fátt annað virtist vera á huga Hvergerðinga dagana fyrir leik. Sól á lofti, troðfull brekka og frábær stemning kom okkur strax á lagið og Roli skoraði eftir argentíska hornspyrnurútínu, Guido tók spyrnuna, Genaro flikkaði honum með góðum skalla á fjærstöngina þar sem Roli beið og HAMRAÐI boltann í netið 1-0 á 3. mínútu leiksins. Við héldum áfram að þjarma að þeim og á 24 mínútu leiksins slapp Binni einn í gegn með vel tímasettu hlaupi innfyrir vörn gestanna og skoraði eftir magnaða sendingu frá Ísak Leó. Þriðja og síðasta markið kom frá Roli Depetris þegar hann lék á tvo varnarmenn innan teigs og skoraði framhjá markverði gestanna, 3-0 sigur í derbyleik staðreynd!

heyrst hefur að hálfdán sé búinn að vera eitthvað hálf dán síðustu daga!

HAMAR 3 - ÁRBORG 0:)

ÁLAFOSS vs hamar

Fimmtudaginn 18. Júní mættum við Álafoss á Malbikstöðinni að Varmá og héldum uppteknum hætti. Fyrsta mark leiksins skoraði Guido Rancez á 3 mínútu leiks með þrumuskalla eftir hornspyrnu og var aftur á ferðinni 6 mínútum síðar þegar hann laumaði boltanum upp í þaknetið úr þröngu færi eftir sendingu frá Ragga, næst var röðin komin að Binna sem skrúfaði boltann upp í samskeytin fyrir utan teig með vinstri fæti á 21 mínútu. Heimamenn svöruðu fyrir sig og skoruðu eftir hornspyrnu stuttu fyrir hálfleikinn, Roli fékk boltann í góðu færi rétt fyrir innan vítateig og lagpi hann í hornið með mikilli yfirvegun á 55 mínútu og stuttu seinna skoraði Binni sitt annað mark á 78 mínútu eftir mögnuð tilfrif frá Kristó þar sem hann stoppaði boltann á lofti með hælnum áður en hann fann Binna óvaldaðann í teignum, Genaro skoraði svo sjötta og síðasta mark okkar á 85 mínútu eftir gott samspil við Roli á hægri vængnum. 1-6 sigur í höfn og liðið á blússandi siglingu með 3 markahæstu menn deildarinnar í fararbroddi. Roli 10 mörk Guido og Binni báðir með 8.

Sjoppan er fjáröflun 4.fl drengja fyrir æfingarferð til Barcelona haustið 2026

BARNA- OG UNGLINGARÁÐ

BUR er hópur öflugra sjálfboðaliða sem heldur utan um barna- og unglingastarf knattspyrnudeildarinnar, frá 8. flokki upp í 2. flokk. Ráðið vinnur náið með þjálfurum, foreldrum og stjórn að því að skapa öflugt, skemmtilegt og uppbyggilegt starf fyrir iðkendurna okkar. BUR kemur að skipulagningu móta og viðburða, styður við þjálfara og byggir upp starf yngri flokka til framtíðar. Guðfinna Ýr - formaður - gudfinna@hamarfotbolti.is Helga Dögg - ritari Freyja Rut - meðstjórnandi Jóhann Pétur - meðstjórnandi Ljósbrá Anna - meðstjórnandi Sigurður Magni - meðstjórnandi

MEISTARFLOKKSRÁÐ

Kristján Hannesson - formaður Sigmundur Magnússon Aron Eðvarð Björnsson Eydís V. Valgarðsdóttir

Við þökkum öllum sem lögðu til efni, voru tilbúin í að hjálpa okkur simma við að gera þessa leikskrá mögulega.

Ritstjóri og ábyrgðarmaður leikskráar er: Röðull Reyr Kárason / 6918301 / rodull@gmail.com Aðstoðaritstjóri og án allrar ábyrgðar: Sigmundur Magnússon